Jæja, haldiði ekki að mín hafi mætt skelþunn og morkin í
fyrsta undirbúningstímann fyrir geislameðferðina! "Nú ætla ég
að taka upp heilbrigðari lífshætti og fara betur með mig og bla bla
bla...." En rauðvín rúlar. Fór í Bláa Lónið með Þóru í
gærkvöldi og þvílík snilld sem sá staður er í myrkri. Þetta
var eins og að koma inn í alvöru drauga- og tröllaland. Hefði
samt alveg mátt sleppa þessum tveimur rútufyllum af amerísku
túrhestunum sem gjömmuðu og kölluðu eins og þau væru ein
þarna. Ég stóðst þá freistingu að kasta drullu í þau og
brosti bara sætt til þeirra, þetta er víst að halda hagkerfinu
uppi. Brunuðum svo tilbaka í bæinn, sáum eitt stykki
fljúgandi furðuhlut sem reyndist vera flugvél (eða þá að að þetta
var FFH sem dulbjó sig sem flugvél þegar í ljós kom á ofurnæmu
geimskönnunum þeirra að til þeirra hafði sést) og hneyksluðumst á
ökuníðingunum á Reykjanesbrautinni. ÖKUNÍÐINGAR, fariði
norður og niður því þið eruð ekki eini sinni hnyttinna athugasemda
minna virði! Gerðum okkur svo sætar og fórum með Lilju á
Tapas þar sem rauðvín var drukkið og matur borðaður. Svo var
það Vínbarinn þar sem meira rauðvín var drukkið og svo var farið
heim til Þóru þar sem enn meira rauðvín var drukkið. Svo var
ég þreytt og þunn í morgun, eins og gefur að skilja.
Klukkan hálfellefu mætti ég svo semífersk á K deildina þar sem
ég fékk ítarlegar upplýsingar um þar sem koma mun. Ég verð
kortlögð, skönnuð, mæld og útkrotuð áður en ég verð geisluð í
spað. Öll þessi tæki og tól gerðu það að verkum að mér fannst
ég vera komin í Star Trek þátt og fannst mér það ekki
leiðinlegt. Ég fékk leyfi til þess að mæta með myndavél næst
og Gústi ætlar að taka myndir sem verða kannski sýndar seinna
meir.
Að þessu loknu var stefnan tekin á Þjóðminjasafnið og
herlegheitin skoðuð. Ég var sérstaklega hrifin af
miðaldakirkjunni, finnst íslenskt trúarlíf hafa misst svoldið mikið
við berstrípun siðaskiptanna og María mey skildi eftir sig frekar
stórt tóm í hjarta þjóðarsálinnar. En þjóðminjasafnið er
virkilega flott, það mætti bara merkja hlutina aðeins betur og vera
fleiri skriflegar útskýringar en ég vona að það megi skrifa á ungan
aldur sýningarinnar.
Núna er mamma á leiðinni þannig að ég læt þetta duga í bili.